haus05.png

Leikfélagið hefur haldið úti Unglingadeild í mörg ár og er aldurinn að jafnaði miðaður efstu tvo bekki grunnskóla og fyrstu tvo í framhaldsskóla. Sett er upp 1 leiksýning á ári hið minnsta og ef aðstæður leyfa eru haldin námskeið.

Leikfélagið hefur undanfarin ár sérhæft sig í skapandi hópvinnu og er lögð áhersla á að unglingadeild tileinki sér aðferðir og vinnubrögð því tengd. Áhugasamir unglingar geta sent póst á Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. .

 

Prentvæn útgáfaSenda í tölvupóst Miðvikudagur, 01. september 2010 12:50 Unglingadeildin fer af stað
youthKynningarfundur unglingadeildarinnar vegna vetrarstarfsins verður í Leikhúsinu föstudaginn 3. september kl. 18 . Þar mun leiðbeinandinn, Gríma Kristjánsdóttir, leiða lysthafendur í allan sannleika um það sem framundan er hjá deildinni. Allir þeir sem hafa hug á að starfa í vetur ættu endilega að láta sjá sig. Í framhaldinu hefst síðan námskeið og sýningarvinna þar á eftir.

Leiklistarstarf eins og það sem fram fer innan unglingadeildarinnar er eitthvert alskemmtilegasta tómstundastarf sem til er og það kostar ekki mikið að vera með (annað en blóð, svita og tár, auðvitað!). Deildin er ætluð krökkum í tveimur efstu bekkjum grunnskóla og tveimur fyrstu bekkjum framhaldsskóla.

Við hvetjum áhugasama að skrá sig einnig á póstlistann okkar (sjá svæði hér til vinstri) hafi þeir ekki gert það nú þegar.

 
Prentvæn útgáfaSenda í tölvupóst Fimmtudagur, 08. október 2009 15:25 Unglingadeild hefur störf
birthday

Hér með er boðað til fundar hjá Unglingadeild LK vegna uppsetningar vetrarins. Þeir sem hyggjast taka þátt mæta í Leikhúsið þri. 13. okt. kl. 17.30. Eins og fram kom fréttabréfi í síðustu viku hefur Guðmundur L. Þorvaldsson verið ráðinn til að leikstýra og mun hann mæta á fundinn til að kynna verkefnið.
Að öllu jöfnu miðast aldur þeirra sem taka þátt við þá sem fæddir  eru á árunum 1992-1995. Þeir sem hyggjast taka þátt en eiga af einhverjum orsökum erfitt með að mæta á umræddum tíma þurfa að láta stjórn LK vita í netfangið Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. .

 
Prentvæn útgáfaSenda í tölvupóst Föstudagur, 03. apríl 2009 11:51 Viltu vera vinur minn á FACEBOOK?
facebook_front.png
Unglingadeild Leikfélags Kópavogs frumsýnir laugardaginn 4. apríl nýtt spunaleikverk um heitasta netfyrirbæri síðari ára, Facebook. Aðalpersóna verksins uppgötvar töfraheim Facebook og sogast smám saman inn í hann með ýmsum afleiðingum á líf hennar. Leikstjóri er Anna Brynja Baldursdóttir og ellefu leikarar skipta á milli sín hlutverkum. Sýningin er unnin af leikstjóra og leikhóp með "devised theatre"" aðferðum. Hugmyndavinna og æfingar hófust í lok febrúar og hefur ferlið því verið stutt en snarpt.

Lesa nánar: Viltu vera vinur minn á FACEBOOK?

   
Prentvæn útgáfaSenda í tölvupóst Föstudagur, 27. febrúar 2009 11:19 Unglingadeild LK setur upp leiksýningu
youth.jpgErtu unglingur eða þekkirðu unglinga (árgerð ´91-´94) með brennandi áhuga á leiklist?
Unglingadeild LK setur upp leiksýningu í leikstjórn Önnu Brynju Baldursdóttur og stefnt er að frumsýningu í byrjun apríl. Anna Brynja hélt námskeið í haust á vegum LK og kenndi Devised Theatre aðferðir sem sýningin verður unnin eftir. Þátttakendur á þessu námskeiði ganga fyrir um þátttöku en nokkur pláss eru þó laus. Þeir sem fæddir eru á árunum 1991-1994 eru gjaldgengir í sýninguna.
Þeir unglingar sem áhuga hafa á að taka þátt í leiksýningunni mæti í Leikhúsið að Funalind 2, laugardaginn 28. Febrúar kl. 10:00.

Nánari upplýsingar má fá með því að senda póst á Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
   
Leikfélag Kópavogs, merki

Póstlisti

Viltu gerast áskrifandi?
Fréttabréf LK



ss-5.png
Leikfélag Kópavogs | Leikhúsinu | Funalind 2 | 201 Kópavogi | Pósthólf 70 | Sími 554 1985 | stjorn@kopleik.is | midasala@kopleik.is
Hönnun og uppsetning, Hugsa sér ehf