haus04.png

Í gangi núna

Prentvæn útgáfaSenda í tölvupóst Miðvikudagur, 02. júní 2010 15:10 Aðalfundur Leikfélags Kópavogs
lk_newlogolargeHér með er boðað til aðalfundar Leikfélags Kópavogs miðvikudaginn 9. júní kl. 20.00.
Fundurinn verður haldinn í Leikhúsinu að Funalind 2. Á dagskrá eru venjuleg aðalfundarstörf.

Nýir félagar eru sérstaklega hvattir til að mæta.

Stjórnin
 
Prentvæn útgáfaSenda í tölvupóst Þriðjudagur, 18. maí 2010 15:26 BINGÓ aldarinnar

BingoNeataFimmtudaginn 20.maí verður glæsilegasta Bingó aldarinnar haldið í Leikfélagi Kópavogs. Glæsilegir vinningar í boði fyrir alla aldurshópa og léttar veitingar til sölu. Trúðarnir Múskat og Kanill stjórna Bingóinu og halda stemningunni á lofti.
Vinningar eru meðal annars:

Hljómplötur frá Borginni
Út að borða á ýmsum stöðum
Gestakort í Hreyfingu og Blue Lagoon Spa
SNJÓSLEÐAFERÐ frá Mountaineers!!!!

Lesa nánar: BINGÓ aldarinnar

 
Prentvæn útgáfaSenda í tölvupóst Miðvikudagur, 10. mars 2010 14:12 Umbúðalaust á Akureyri

umbudalaust002Eins og fram hefur komið verður efnt til mikillar leiklistarveislu á Akureyri í sumar. Þar er um að ræða norður-evrópsku leiklistarhátíðina Art of the Heart þar sem fulltrúar níu landa auk Íslands munu troða upp.

Valnefnd hátíðarinnar tilkynnti í gær um val á fulltrúum Íslands og er þar skemmst frá að segja að sýning Leikfélags Kópavogs, Umbúðalaust, var ein þriggja sýninga sem valin var sem fulltrúi lands og þjóðar. Umbúðalaust verður þar að auki opnunarsýning hátíðarinnar. Hinar íslensku sýningarnar verða uppfærsla Leikfélags Selfoss á Birtíngi og sýning Freyvangsleikhússins, Vínland. Einnig koma sýningar frá Svíþjóð, Færeyjum, Noregi, Danmörku, Finnlandi, Frakklandi, Litháen, Lettlandi og Rúmeníu.

Umbúðalaust var frumsýnt í Leikhúsinu í janúar. Verkið var unnið í spunavinnu undir stjórn Vigdísar Jakobsdóttur. Í kynningu var m.a. sagt:

Ellefu persónur. Ellefu hindranir. Óteljandi möguleikar. Óræðar persónur á óljósum stað eru knúnar til að taka málin í sínar hendur þegar óvænt atvik ber að garði. Saman og hvert í sínu lagi komast þau að því að þáttaskil marka ekki endilega sögulok – og þráðurinn sem þau fylgdu í byrjun er ekki endilega haldreipið sem þarf til að komast í örugga höfn.

Lesa nánar: Umbúðalaust á Akureyri

   
Prentvæn útgáfaSenda í tölvupóst Fimmtudagur, 04. mars 2010 12:50 Blóðsystur - aukasýning

blodsystur183Unglingadeild Leikfélagsins sýnir í kvöld, fimmtudaginn 4. mars kl. 20.00, spennutryllinn Blóðsystur.  Leikhópurinn sem stendur að Blóðsystrum er skipaður átta upprennandi leikurum sem eru undir styrkri stjórn Guðmundar Lúðvíks Þorvaldssonar.
Verkið var unnið í spunavinnu og höfundar því leikstjórinn Guðmundur L. Þorvaldsson, aðstoðarleikstjórinn Víðir Örn Jóakimsson og unglingarnir í hópnum. Þeir heita: Agnes Engilráð Scheving, Anna Kristjana Ó. Hjaltested, Bjarni Erlendsson, Dagbjört  Rós Jónsdóttir, Hanna Rún Jónasdóttir, Lovísa Þorsteinsdóttir, María Björt Ármannsdóttir og Sigrún Gyða Sveinsdóttir. Auk þeirra hafa ýmsir félagsmenn lagt hönd á plóg við gerð leikmyndar og búninga, lýsingu og annað tilfallandi.

Blóðsystur er spennandi og skemmtileg sýning en best er að hafa sem fæst orð um söguþráðinn því sjón er sögu ríkari. Þó má geta þess að þar koma fram nokkrar guðhræddar stúlkur sem ekki eru allar þar sem þær eru séðar og hinn ráðagóði Sigurður vampírubani.

Miðapantanir skal senda á Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. eða hringja í síma 554 1985. Skuldlausir félagar LK eiga frímiða á sýninguna en almennt miðaverð er 1.000 kr.*

* Aldraðir, öryrkjar, námsmenn, nunnur og vampírur fá helmingsafslátt af miðaverði.

 
Prentvæn útgáfaSenda í tölvupóst Föstudagur, 19. febrúar 2010 09:06 Blóðsystur frumsýndar

blodsystur182Laugardaginn 19. febrúar frumsýndi unglingadeild Leikfélags Kópavogs nýtt íslenskt leikrit, Blóðsystur, í Leikhúsinu við Funalind 2. Hópurinn sem skipaður er átta upprennandi leikurum hefur æft og þjálfað af kappi frá í haust undir styrkri stjórn Guðmundar Lúðvíks Þorvaldssonar.
Verkið sem nú liggur fyrir er afrakstur þeirrar vinnu en það er orðið til í spunavinnu og höfundar því leikstjórinn Guðmundur L. Þorvaldsson, aðstoðarleikstjórinn Víðir Örn Jóakimsson og unglingarnir í hópnum. Þeir heita: Agnes Engilráð Scheving, Anna Kristjana Ó. Hjaltested, Bjarni Erlendsson, Dagbjört  Rós Jónsdóttir, Hanna Rún Jónasdóttir, Lovísa Þorsteinsdóttir, María Björt Ármannsdóttir og Sigrún Gyða Sveinsdóttir. Auk þeirra hefur ýmsir félagsmenn lagt hönd á plóg við gerð leikmyndar og búninga, lýsingu og annað tilfallandi.

Lesa nánar: Blóðsystur frumsýndar

   

Síða 1 af 15

<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Síðasta >>
Leikfélag Kópavogs, merki

Póstlisti

Viltu gerast áskrifandi?
Fréttabréf LK



ithrottungur_frontsmall.png
Leikfélag Kópavogs | Leikhúsinu | Funalind 2 | 201 Kópavogi | Pósthólf 70 | Sími 554 1985 | stjorn@kopleik.is | midasala@kopleik.is
Hönnun og uppsetning, Hugsa sér ehf