haus04.png
Prentvæn útgáfaSenda í tölvupóst Blóðsystur frumsýndar

blodsystur182Laugardaginn 19. febrúar frumsýndi unglingadeild Leikfélags Kópavogs nýtt íslenskt leikrit, Blóðsystur, í Leikhúsinu við Funalind 2. Hópurinn sem skipaður er átta upprennandi leikurum hefur æft og þjálfað af kappi frá í haust undir styrkri stjórn Guðmundar Lúðvíks Þorvaldssonar.
Verkið sem nú liggur fyrir er afrakstur þeirrar vinnu en það er orðið til í spunavinnu og höfundar því leikstjórinn Guðmundur L. Þorvaldsson, aðstoðarleikstjórinn Víðir Örn Jóakimsson og unglingarnir í hópnum. Þeir heita: Agnes Engilráð Scheving, Anna Kristjana Ó. Hjaltested, Bjarni Erlendsson, Dagbjört  Rós Jónsdóttir, Hanna Rún Jónasdóttir, Lovísa Þorsteinsdóttir, María Björt Ármannsdóttir og Sigrún Gyða Sveinsdóttir. Auk þeirra hefur ýmsir félagsmenn lagt hönd á plóg við gerð leikmyndar og búninga, lýsingu og annað tilfallandi.

 

Blóðsystur er spennandi og skemmtileg sýning en best er að hafa sem fæst orð um söguþráðinn því sjón er sögu ríkari. Þó má geta þess að þar koma fram nokkrar guðhræddar stúlkur sem ekki eru allar þar sem þær eru séðar og hinn ráðagóði Sigurður vampírubani.

blodsystur183Næstu sýningar verða:

Miðvikudag 24. fegbrúar kl. 20.00
Fimmtudag 25. febrúar kl. 20.00

Sýnt er í Leikhúsinu að Funalind 2. Við minnum á að skuldlausir félagar LK eiga frímiða á sýninguna. Miðapantanir eru í  Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. eða s. 554 1985.

 

 

 

 

 

 

 

 

Leikfélag Kópavogs, merki

Póstlisti

Viltu gerast áskrifandi?
Fréttabréf LK



ss-5.png
Leikfélag Kópavogs | Leikhúsinu | Funalind 2 | 201 Kópavogi | Pósthólf 70 | Sími 554 1985 | stjorn@kopleik.is | midasala@kopleik.is
Hönnun og uppsetning, Hugsa sér ehf