
Ákveðið hefur verið að hafa tvær aukasýningar á leiksýningunni Umbúðalaust sem Leikfélagið hefur sýnt að undanförnu. Sýningarnar verða sunnudag 7. febrúar og mánudag 8. febrúar kl. 20.00. Sýningin sem er samin af leikhópnum og leikstjóranum Vigdísi Jakobsdóttur hefur fengið mjög góðar viðtökur og þykir fersk og óvenjuleg.
Meðal þess sem Þorgeir Tryggvason sagði í dómi sínum á Leiklistarvefnum:
"Vel skipaður leikhópurinn skilar sínu af algerri einlægni og sannfæringarkrafti... Sýningin er vel samsett. Hlutarnir flæða vel hver inn í annan og leikararnir styðja vel við atriði hvers annars... leikmyndin er aldeilis frábær. Merkingarþrungin, falleg og þénug."
Óræðar persónur á óljósum stað eru knúnar til að taka málin í sínar hendur þegar óvænt atvik ber að garði. Saman og hvert í sínu lagi komast þau að því að þáttaskil marka ekki endilega sögulok – og þráðurinn sem þau fylgdu í byrjun er ekki endilega haldreipið sem þarf til að komast í örugga höfn. Er sá sem síðast hlær kannski sá sem náði ekki brandaranum?
Leikfélag Kópavogs hefur þá stefnu að setja árlega upp hópvinnusýningu (devised theatre). Skemmst er að minnast vel heppnaðra sýninga eins og Grimms ævintýra, Memento mori og Skugga-Svein. Umbúðalaust var unnin í samstarfi leikstjórans Vigdísar Jakobsdóttur og leikhópsins.
Vigdís hefur áður unnið með LK og sett upp afar áhugaverðar og fjölbreyttar leiksýningar. Leikfélag Kópavogs hefur aðsetur í nýju leikhúsi við Funalind 2.
Sýnt er í Leikhúsinu að Funalind 2. Við minnum á að skuldlausir félagar LK eiga frímiða á sýninguna. Miðapantanir eru í Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. eða s. 554 1985.
| < Fyrri | Næsta > |
|---|