
er samtök áhugaleikfélaga á Íslandi, stofnuð árið 1950. Í samtökunum eru 62 leikfélög sem starfa vítt og breitt um landið. Fjöldi einstaklinga í félögunum er u.þ.b. 4.000. Bandalagið rekur einu þjónustumiðstöð leiklistarinnar hérlendis og þjónar ekki einungis áhugaleikfélögum, heldur öllum þeim sem starfa að málefnum leiklistar á landinu. Þar eru m.a. seldar förðunarvörur og hárkollur og þar er að finna stærsta leikritasafn landsins. Starfsfólk þjónustumiðstöðvarinnar aðstoðar við útvegun sýningarleyfa og sér um innheimtu höfundargreiðslna, auk þess að veita ráðgjöf um ýmislegt sem við kemur leiklist. Bandalagið starfrækir Leiklistarskóla og heldur úti þessum vef, www.leiklist.is.
Samstarfsvettvangur norrænna áhugaleikhúsmanna NEATA eru svæðissamtök Norðurlandanna og Eystrasaltsríkjanna
Fleiri slóðir má finna á vef Bandalags íslenskra leikfélaga.
| < Fyrri |
|---|