
Undanfarnar
vikur hafa staðið yfir æfingar á ÖLLU & ENGU hjá Leikfélagi
Kópavogs. Verkið hafði í upphafi vinnuheitið EKKERT og eins og það
gefur til kynna byrjaði hópurinn með EKKERT í höndunum. EKKERT handrit.
EKKERT haldreipi. Það var upphafið að ÖLLU & ENGU. Frumsýning
á ALLT & EKKERT er föstudaginn 2. mars og byrjar sýningin klukkan
20. Hægt er að panta miða hér á vefnum og í síma 8239700.
ALLT & EKKERT
Hópurinn,
sem er samansettur af jafnt gömlum sem nýjum meðlimum LK, hefur komið
víða við þessar vikur, en er núna kominn á áfangastað. ALLT &
EKKERT hópurinn hefur grafið upp safn af sögum og mun í byrjun mars
bjóða uppá líflegar frásagnir, kaffi og með því í hlýlegu og þægilegu
umhverfi. Allt og ekkert sem þið hafið séð fram að þessu getur búið
ykkur undir ALLT & EKKERT.
Þann 5. janúar næstkomandi fagnar Leikfélag Kópavogs því að 50 ár eru liðin frá stofnun þess. Af því tilefni verður efnt til afmælisfagnaðar í félagsheimili Kópavogs, Fannborg 2.
Allir félagar í Leikfélagi Kópavogs, fyrrverandi og núverandi, eru velkomnir ásamt öðrum velunnurum félagsins.
Ýmislegt skemmtilegt verður á boðstólum fyrir afmælisgesti, margir félagar munu stíga á svið og skemmta með söngi og leik, atriði úr uppsetningum félagsins verða sýnd ásamt mörgu fleiru.
Dagskráin hefst klukkan 20 og verður boðið upp á léttar veitingar.
Síða 14 af 15
<< Fyrsta < Fyrri 11 12 13 14 15 Næsta > Síðasta >>