mynd.png
Fimmtudagur, 04. mars 2010 12:50 Blóðsystur - aukasýning

blodsystur183Unglingadeild Leikfélagsins sýnir í kvöld, fimmtudaginn 4. mars kl. 20.00, spennutryllinn Blóðsystur.  Leikhópurinn sem stendur að Blóðsystrum er skipaður átta upprennandi leikurum sem eru undir styrkri stjórn Guðmundar Lúðvíks Þorvaldssonar.
Verkið var unnið í spunavinnu og höfundar því leikstjórinn Guðmundur L. Þorvaldsson, aðstoðarleikstjórinn Víðir Örn Jóakimsson og unglingarnir í hópnum. Þeir heita: Agnes Engilráð Scheving, Anna Kristjana Ó. Hjaltested, Bjarni Erlendsson, Dagbjört  Rós Jónsdóttir, Hanna Rún Jónasdóttir, Lovísa Þorsteinsdóttir, María Björt Ármannsdóttir og Sigrún Gyða Sveinsdóttir. Auk þeirra hafa ýmsir félagsmenn lagt hönd á plóg við gerð leikmyndar og búninga, lýsingu og annað tilfallandi.

Blóðsystur er spennandi og skemmtileg sýning en best er að hafa sem fæst orð um söguþráðinn því sjón er sögu ríkari. Þó má geta þess að þar koma fram nokkrar guðhræddar stúlkur sem ekki eru allar þar sem þær eru séðar og hinn ráðagóði Sigurður vampírubani.

Miðapantanir skal senda á Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. eða hringja í síma 554 1985. Skuldlausir félagar LK eiga frímiða á sýninguna en almennt miðaverð er 1.000 kr.*

* Aldraðir, öryrkjar, námsmenn, nunnur og vampírur fá helmingsafslátt af miðaverði.

 
Föstudagur, 19. febrúar 2010 09:06 Blóðsystur frumsýndar

blodsystur182Laugardaginn 19. febrúar frumsýndi unglingadeild Leikfélags Kópavogs nýtt íslenskt leikrit, Blóðsystur, í Leikhúsinu við Funalind 2. Hópurinn sem skipaður er átta upprennandi leikurum hefur æft og þjálfað af kappi frá í haust undir styrkri stjórn Guðmundar Lúðvíks Þorvaldssonar.
Verkið sem nú liggur fyrir er afrakstur þeirrar vinnu en það er orðið til í spunavinnu og höfundar því leikstjórinn Guðmundur L. Þorvaldsson, aðstoðarleikstjórinn Víðir Örn Jóakimsson og unglingarnir í hópnum. Þeir heita: Agnes Engilráð Scheving, Anna Kristjana Ó. Hjaltested, Bjarni Erlendsson, Dagbjört  Rós Jónsdóttir, Hanna Rún Jónasdóttir, Lovísa Þorsteinsdóttir, María Björt Ármannsdóttir og Sigrún Gyða Sveinsdóttir. Auk þeirra hefur ýmsir félagsmenn lagt hönd á plóg við gerð leikmyndar og búninga, lýsingu og annað tilfallandi.

Lesa nánar: Blóðsystur frumsýndar

 
Þriðjudagur, 02. febrúar 2010 22:22 Aukasýningar á Umbúðalausu

umbalaust042Ákveðið hefur verið að hafa tvær aukasýningar á leiksýningunni Umbúðalaust sem Leikfélagið hefur sýnt að undanförnu. Sýningarnar verða sunnudag 7. febrúar og mánudag 8. febrúar kl. 20.00. Sýningin sem er samin af  leikhópnum og leikstjóranum Vigdísi Jakobsdóttur hefur fengið mjög góðar viðtökur og þykir fersk og óvenjuleg.
Meðal þess sem Þorgeir Tryggvason sagði í dómi sínum á Leiklistarvefnum:
"Vel skipaður leikhópurinn skilar sínu af algerri einlægni og sannfæringarkrafti... Sýningin er vel samsett. Hlutarnir flæða vel hver inn í annan og leikararnir styðja vel við atriði hvers annars... leikmyndin er aldeilis frábær.  Merkingarþrungin, falleg og þénug."

 

Lesa nánar: Aukasýningar á Umbúðalausu

 
Sunnudagur, 10. janúar 2010 20:59 Frumsýning - UMBÚÐALAUST

umbudalaust002Ellefu persónur. Ellefu hindranir. Óteljandi möguleikar.

Föstudaginn 15. janúar frumsýnir Leikfélagið frumsamda leiksýningu er ber heitið UMBÚÐALAUST. Sýningin er unnin í samvinnu leikstjórans Vigdísar Jakobsdóttur og leikhópsins.
Óræðar persónur á óljósum stað eru knúnar til að taka málin í sínar hendur þegar óvænt atvik ber að garði. Saman og hvert í sínu lagi komast þau að því að þáttaskil marka ekki endilega sögulok – og þráðurinn sem þau fylgdu í byrjun er ekki endilega haldreipið sem þarf til að komast í örugga höfn.  Er sá sem síðast hlær kannski sá sem náði ekki brandaranum?

Lesa nánar: Frumsýning - UMBÚÐALAUST

 

Síða 2 af 15

<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Síðasta >>
Leikfélag Kópavogs, merki

Póstlisti

Viltu gerast áskrifandi?
Fréttabréf LK



ithrottungur_frontsmall.png
Leikfélag Kópavogs | Leikhúsinu | Funalind 2 | 201 Kópavogi | Pósthólf 70 | Sími 554 1985 | stjorn@kopleik.is | midasala@kopleik.is
Hönnun og uppsetning, Hugsa sér ehf