
LK stefnir að því að opna leikhúsið í Funalind í september.Á aðalfundi var samþykkt að gefa húsinu nafnið Leikhúsið.
Framundan á næstu 2-3 mánuðum er mikill vinnusprettur til að koma Leikhúsinu okkar í starfhæft ástand fyrir komandi leikár. Það skiptir miklu máli að sem flestir geti lagt hönd á plóginn. Leikfélagið ætlast til að hver maður geri skyldu sína.
Fastir vinnutímar í húsinu eru á þriðjudögum frá kl. 20.00 og á laugardögum frá kl. 10.00.
Þar fyrir utan er unnið þegar færi gefst.
Tengiliðir vegna vinnunnar eru:
Hörður s. 860-0105
Gísli s. 822-8426
Örn s. 692-9692
Hver viðbótarhönd skiptir máli!
Kveðja frá stjórn LK.
Á fimmtudaginn kemur, þann 26. júní verður allsherjarvinnudagur í
Leikhúsinu við Funalind. Allnokkuð hefur unnist undanfarnar vikur og má t.d. nefna að búið er að koma upp burðarvirkiinu að tæknibúrinu þar sem aðsetur ljósa- og hljóðmanna verður.
Þeir sem hafa á því tök, mæta um morguninn en
aðrir seinnipart dags eða þegar þeir geta. Munið að margar hendur vinna létt verk.
Allir meðlimir og velunnarar eru hvattir til að líta við hvort sem þeir hafa tök á að leggja vinnunni lið eða ekki. Heitt verður á könnunni og fólk er hvatt til að líta við og skoða hvernig framkvæmdum miðar.
Aðalfundur Leikfélags Kópavogs var haldinn fimmtudaginn 5. júní síðastliðinn. Ný stjórn var kjörin og skipa hana eftirtaldir:
Hörður Sigurðarson, formaður
Gísli Björn Heimisson, varaformaður
Héðinn Sveinbjörnsson, ritari
Arnar Ingvarsson meðstjórnandi
Sigrún Tryggvadóttir, meðstjórnandi
Í varastjórn voru kjörin:
Bjarni Guðmarsson, Gríma Kristjánsdóttir, Sveinn Ásbjörnsson, Ögmundur Jóhannesson, Örn Alexandersson
Þess má geta að Örn gaf ekki kost á sér áfram í aðalstjórn eftir 16 ára samfellda setu þar og er líklegt að um met sé þar að ræða.
Boðað er til aðalfundar Leikfélags Kópavogs fyrir leikárið 07/08. Fundurinn verður haldinn fimmtudaginn 5. júní kl. 20:00 í Leikhúsinu, Funalind 2 í Kópavogi.
Dagskrá fundarins fer fram skv. 7. grein laga Leikfélags Kópavogs:
7. grein
Störf aðalfundar eru þessi:
a) Skýrsla stjórnar félagsins um starf á leikárinu.
b) Stjórnarkjör
c) Aðrar kosningar.
d) Lagabreytingar. Tillögur skulu sendar stjórn eigi síðar en fyrir lok mars.
e) Ákvörðun félagsgjalda.
f) Lagðir fram endurskoðaðir reikningar fyrir síðasta reikningsár.
g) Kosningar tveggja endurskoðenda og eins til vara.
h) Önnur mál.
i) Afgreiðsla fundargerðar
Atkvæðis- og kosningarrétt hafa skuldlausir félagar leikfélagsins, en þeir sem áhuga hafa á að koma og kynna sér starfsemi félagsins eru velkomnir.
Stjórn Leikfélags Kópavogs
Síða 10 af 15
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Síðasta >>