
Leikhúsið okkar var vígt á laugardaginn var þegar Skugga-Sveinn var frumsýndur við góðar undirtektir áhorfenda. Sérlega ánægjulegt var að nokkrir stofnfélagar Leikfélagsins voru viðstaddir sýninguna og má sjá þá hér á myndinni til hliðar. Þetta er fólkið sem fyrir rúmri hálfri öld stofnaði leikfélag af bjartsýni og dug í litlu bæjarfélagi.
Leikfélag Kópavogs frumsýnir 19. október þann sígildasta af öllum sígildum, sjálfan Skugga-Svein Matthíasar Jochumssonar.
Verkið er sýnt í glænýrri leikgerð, sem löguð er að kröfum tímans. Skugga-Sveinn er jafnframt vígslusýning Leikhússins sem nýs leikhús félagsins í Funalind 2 í Kópavogi.
Leikstjóri er Ágústa Skúladóttir en uppfærslur hennar á undanförnum árum hafa þótt með því ferskasta í íslensku leikhúsi, sýningar á borð við Klaufa og kóngsdætur, Eldhús eftir máli, Stórfengleg, Grimms og margar fleiri.
Næstu sýningar verða sem hér segir:
Fim. 23. okt. kl. 20.00Miðaverð er 1.500 kr. Verð fyrir hópa, námsmenn, aldraða og öryrkja er 1.000 kr. Miðapantanir má senda í tölvupósti á Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. .
Nú standa yfir æfingar á Skugga-Sveini í leikstjórn Ágústu Skúladóttur. Áætluð frumsýning er 19. október. Samhliða æfingum er verið að leggja lokahönd á framkvæmdir við Leikhúsið við Funalind. Öll aðstoð við vinnuna er vel þegin.
Æfinga- og vinnuplan má sjá hér og og má fólk mæta á þeim vinnutímum sem þar eru gefnir upp.
Á næstunni verður unnið í Leikhúsinu sem hér segir:
Laugardagur 5. júlí, kl. 10.00 -15.00
Þriðjudagur 8. júlí, kl. 19.30 - 23.00
Laugardagur 12. júlí, kl. 10.00 -15.00
Hver mínúta sem menn geta lagt af mörkum skiptir máli!
Tengiliðir vegna vinnunnar eru:
Hörður s. 860-0105
Gísli s. 822-8426
Örn s. 692-9692
Síða 9 af 15
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Síðasta >>