haus04.png
Þriðjudagur, 27. janúar 2009 12:24 Samlestur á Rúa og Stúa
helper.pngLeikfélag Kópavogs boðar til fyrsta samlesturs á barnaleikritinu Rúa og Stúa fimmtudaginn 29. janúar næstkomandi kl. 19.30. Leikstjóri er Hörður Sigurðarson.
Gamlir sem nýir félagar eru hvattir til að mæta. Þörf er á félögum í ýmis störf við uppsetninguna, hvort sem er á sviði eða utan þess.
 
Þriðjudagur, 20. janúar 2009 10:21 Almennur félagsfundur
lk_newlogosmall.pngAlmennur félagsfundur

Leikfélag Kópavogs boðar almennan félagsfund laugardaginn 24. janúar kl. 14.00 í Leikhúsinu að Funalind 2. Á dagskrá er kynning á starfsemi félagsins fram á vor. Markmiðið er öðrum þræði að kanna hverjir ætla sér að taka þátt í þeim verkefnum sem framundan eru. Nýir félagar eru sérstaklega boðnir velkomnir. Þörf er á félögum í ýmis störf, hvort sem er á sviði eða utan þess.

Sjáumst heil á laugardag.

Stjórnin.

 
Þriðjudagur, 13. janúar 2009 00:00 Aukasýningar á Skugga-Sveini

skuggi01.png

Aðeins 2 sýningar eftir á Skugga-Sveini í janúar: 

Fim. 15. jan. kl. 20.00 - Örfá sæti laus
Fös. 16. jan. kl. 20.00 - UPPSELT

Miðapantanir á Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. eða í síma 823 9700

 

Lesa nánar: Aukasýningar á Skugga-Sveini

 
Miðvikudagur, 22. október 2008 22:13 Leiklistarnámskeið fyrir unglinga fædda 1991-1994
ungspotlight.pngLeikfélag Kópavogs heldur leiklistarnámskeið fyrir unglinga með yfirskriftinni "Að segja sögu á sviði". Kennari er Anna Brynja Baldursdóttir sem hefur numið leiklist í Rose Bruford College á Englandi og hefur einnig lokið námi í kennslufræðum frá Listaháskóla Íslands. 
Námskeiðið hefst þriðjudaginn 28. október. Kennt verður tvisvar í viku á þriðjudgum og fimmtudögum kl. 16.30-18.30 að jafnaði, með nokkrum undantekningum. Námskeiðið fer fram í Leikhúsinu að Funalind 2 í Kópavogi.
Námskeiðið er öllum opið sem uppfylla aldursskilyrði en núverandi meðlimir unglingadeildar LK ganga fyrir með pláss og Kópavogsbúar hafa forgang fram yfir aðra. Námskeiðið er ætlað ungu fólki með áhuga á leiklist og er gerð krafa um góða mætingu og aga hjá þátttakendum.

Lesa nánar: Leiklistarnámskeið fyrir unglinga fædda 1991-1994

 

Síða 8 af 15

<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Síðasta >>
Leikfélag Kópavogs, merki

Póstlisti

Viltu gerast áskrifandi?
Fréttabréf LK



ithrottungur_frontsmall.png
Leikfélag Kópavogs | Leikhúsinu | Funalind 2 | 201 Kópavogi | Pósthólf 70 | Sími 554 1985 | stjorn@kopleik.is | midasala@kopleik.is
Hönnun og uppsetning, Hugsa sér ehf