haus07.png
Föstudagur, 18. september 2009 16:46 Haustverkefnið hefst!

vigdisj01Leikfélagið boðar hér með til upphafs haustverkefnis laugardaginn 19. sept. kl. 10.00. Eins og áður hefur verið kynnt mun Vigdís Jakobsdóttir stýra hópvinnu sem lýkur með frumsýningu í byrjun nóvember.  Þeir félagsmenn sem áhuga hafa á að taka þátt mæta í leikhúsið á ofangreindum tíma í viðeigandi klæðnaði og skapi.

Óhætt er að lifa afar spennandi og skemmtilegri uppsetningu undir stjórn Vigdísar.

 
Fimmtudagur, 03. september 2009 20:06 Vetrardagskráin kynnt

yearflow2010Leikfélag Kópavogs heldur almennan félagsfund fimmtudaginn 10. sept. næstkomandi kl. 20.00. Á fundinum verður dagskrá vetrarins kynnt. Má þar m.a. nefna spennandi verkefni sem Vigdís Jakobsdóttir stýrir, leiksýningu Unglingadeildar, blandaðar leikdagskrár og sitthvað fleira.

Léttar veitingar af ýmsu tagi verða í boði og til sölu að loknum fundi. Fundurinn verður haldinn í Leikhúsinu Funalind 2.

Aðalfundi LK í sumar var frestað svo hægt væri að gera tímabærar breytingar á lögum félagsins. Framhaldsaðalfundur verður haldinn samhliða félagsfundi þar sem á dagskrá eru lagabreytingar og önnur mál.

 

 
Fimmtudagur, 03. september 2009 20:11 Félagatal

coinsVerið er að uppfæra félagatal Leikfélagsins og breyta fyrirkomulagi við greiðslu félagsgjalds sem er nú 2.000 kr. Sendur verður greiðsluseðill í netbanka.

Þeir sem vilja greiða félagsgjald en fá ekki greiðsluseðil í netbanka geta beðið um það með því að senda póst á Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. með nafni og kennitölu.

Þeir sem fá greiðsluseðil en vilja ekki greiða félagsgjald eru beðnir um að senda okkur línu þar um á Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. . Þess má geta að ekki er nauðsynlegt að vera félagi til að gerast áskrifandi að fréttabréfi. Einnig má benda á að ýmis fríðindi fylgja félagsaðild, s.s. frímiðar á sýningar félagsins auk ýmissa tilboða á sýningar annarra, opnar æfingar og fleira..

 
Föstudagur, 05. júní 2009 10:57 Ný stjórn kjörin á aðalfundi

lk_newlogosmall.pngAðalfundur Leikfélagsins var haldinn í gær fimmtudaginn 4. júní. Eftirfarandi breytingar urðu á stjórn félagsins:
Sigrún Tryggvadóttir var kjörinn varaformaður til tveggja ára í stað Gísla B. Heimissonar sem ekki gaf kost á sér til endurkjörs. Héðinn Sveinbjörnsson var endurkjörinn í stjórn til tveggja ára og var settur í embætti gjaldkera. Gríma Kristjánsdóttir var kjörin í aðalstjórn til eins árs. Aðrir í stjórn eru Hörður Sigurðarson formaður og Arnar Ingvarsson meðstjórnandi sem eiga eftir að sitja í eitt ár sem aðalstjórnarmenn. Varastjórn skipa Örn Alexandersson, Bjarni Guðmarsson, Ögmundur Jóhannesson,  Ágústa Sigrún Ágústsdóttir og Þórdís Sigurgeirsdóttir. Þeir þrír fyrstnefndu sitja áfram í varastjórn en Ágústa og Þórdís koma nýjar inn. 

Lesa nánar: Ný stjórn kjörin á aðalfundi

 

Síða 5 af 15

<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Síðasta >>
Leikfélag Kópavogs, merki

Póstlisti

Viltu gerast áskrifandi?
Fréttabréf LK



ithrottungur_frontsmall.png
Leikfélag Kópavogs | Leikhúsinu | Funalind 2 | 201 Kópavogi | Pósthólf 70 | Sími 554 1985 | stjorn@kopleik.is | midasala@kopleik.is
Hönnun og uppsetning, Hugsa sér ehf