haus06.png
Miðvikudagur, 14. október 2009 11:53 Rúi og Stúi mættir á nýjan leik

RuiStuiFrontLeiksýningin Rúi og Stúi sem frumsýnd var síðastliðið vor verður tekin upp að nýju nú um helgina. Áætlaðar eru níu sýningar fyrsta kastið. Nýmæli er að kynning og sala sýningarinnar er í samstarfi við Kópavogsdeild Rauða krossins. Þriðjungur af miðaverði mun renna til Barna- og ungmennastarfs Rauða krossins. Á móti mun Kópavogsdeildin nýta tengsla- og sjálboðaliðanet sitt til að kynna sýninguna.

Rúi og Stúi fjallar um sérkennilega uppfinningamenn sem hafa fundið upp vél sem getur búið til eða
lagað hvað sem er.

Lesa nánar: Rúi og Stúi mættir á nýjan leik

 
Fimmtudagur, 08. október 2009 15:25 Unglingadeild hefur störf
birthday

Hér með er boðað til fundar hjá Unglingadeild LK vegna uppsetningar vetrarins. Þeir sem hyggjast taka þátt mæta í Leikhúsið þri. 13. okt. kl. 17.30. Eins og fram kom fréttabréfi í síðustu viku hefur Guðmundur L. Þorvaldsson verið ráðinn til að leikstýra og mun hann mæta á fundinn til að kynna verkefnið.
Að öllu jöfnu miðast aldur þeirra sem taka þátt við þá sem fæddir  eru á árunum 1992-1995. Þeir sem hyggjast taka þátt en eiga af einhverjum orsökum erfitt með að mæta á umræddum tíma þurfa að láta stjórn LK vita í netfangið Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. .

 
Fimmtudagur, 08. október 2009 15:23 Kvöldvaka fös. 9. okt.

party01Þó fyrirvarinn sé lítill verður haldin óformleg kvöldvaka í Leikhúsinu föstudaginn 9. október. kl. 20.30. Léttar veitingar verða í boði og til sölu. Félagsmenn, vinir og velunnarar velkomnir.

Kl. 21.30 verður fluttur stuttur leikþáttur en að öðru leyti eru ekki um formlega dagskrá að ræða.

 
Þriðjudagur, 29. september 2009 00:08 Félagsgjald LK

yearflow2010

Rukkanir vegna félagsgjalda voru sendar í heimabanka í síðustu viku. Sent var á stóran hóp fólks sem starfað hefur með félaginu eða sýnt hefur því sérstakan áhuga á undanförnum árum. Þeir sem vilja biðjast undan rukkun í heimabanka eru beðnir um að senda póst á  Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. . Þeir sem vilja greiða félagsgjald en hafa ekki fengið rukkun geta sent póst á sama netfang.

 

Síða 4 af 15

<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Síðasta >>
Leikfélag Kópavogs, merki

Póstlisti

Viltu gerast áskrifandi?
Fréttabréf LK



ss-5.png
Leikfélag Kópavogs | Leikhúsinu | Funalind 2 | 201 Kópavogi | Pósthólf 70 | Sími 554 1985 | stjorn@kopleik.is | midasala@kopleik.is
Hönnun og uppsetning, Hugsa sér ehf