
Kynningarfundur unglingadeildarinnar vegna vetrarstarfsins verður í Leikhúsinu föstudaginn 3. september kl. 18 . Þar mun leiðbeinandinn, Gríma Kristjánsdóttir, leiða lysthafendur í allan sannleika um það sem framundan er hjá deildinni. Allir þeir sem hafa hug á að starfa í vetur ættu endilega að láta sjá sig. Í framhaldinu hefst síðan námskeið og sýningarvinna þar á eftir.
Leiklistarstarf eins og það sem fram fer innan unglingadeildarinnar er eitthvert alskemmtilegasta tómstundastarf sem til er og það kostar ekki mikið að vera með (annað en blóð, svita og tár, auðvitað!). Deildin er ætluð krökkum í tveimur efstu bekkjum grunnskóla og tveimur fyrstu bekkjum framhaldsskóla.
Við hvetjum áhugasama að skrá sig einnig á póstlistann okkar (sjá svæði hér til vinstri) hafi þeir ekki gert það nú þegar.
Hér með er boðað til aðalfundar Leikfélags Kópavogs miðvikudaginn 9. júní kl. 20.00.
Fimmtudaginn 20.maí verður glæsilegasta Bingó aldarinnar haldið í Leikfélagi Kópavogs. Glæsilegir vinningar í boði fyrir alla aldurshópa og léttar veitingar til sölu. Trúðarnir Múskat og Kanill stjórna Bingóinu og halda stemningunni á lofti.
Vinningar eru meðal annars:
Hljómplötur frá Borginni
Út að borða á ýmsum stöðum
Gestakort í Hreyfingu og Blue Lagoon Spa
SNJÓSLEÐAFERÐ frá Mountaineers!!!!
Eins og fram hefur komið verður efnt til mikillar leiklistarveislu á Akureyri í sumar. Þar er um að ræða norður-evrópsku leiklistarhátíðina Art of the Heart þar sem fulltrúar níu landa auk Íslands munu troða upp.
Valnefnd hátíðarinnar tilkynnti í gær um val á fulltrúum Íslands og er þar skemmst frá að segja að sýning Leikfélags Kópavogs, Umbúðalaust, var ein þriggja sýninga sem valin var sem fulltrúi lands og þjóðar. Umbúðalaust verður þar að auki opnunarsýning hátíðarinnar. Hinar íslensku sýningarnar verða uppfærsla Leikfélags Selfoss á Birtíngi og sýning Freyvangsleikhússins, Vínland. Einnig koma sýningar frá Svíþjóð, Færeyjum, Noregi, Danmörku, Finnlandi, Frakklandi, Litháen, Lettlandi og Rúmeníu.
Umbúðalaust var frumsýnt í Leikhúsinu í janúar. Verkið var unnið í spunavinnu undir stjórn Vigdísar Jakobsdóttur. Í kynningu var m.a. sagt:
Ellefu persónur. Ellefu hindranir. Óteljandi möguleikar. Óræðar persónur á óljósum stað eru knúnar til að taka málin í sínar hendur þegar óvænt atvik ber að garði. Saman og hvert í sínu lagi komast þau að því að þáttaskil marka ekki endilega sögulok – og þráðurinn sem þau fylgdu í byrjun er ekki endilega haldreipið sem þarf til að komast í örugga höfn.
Síða 1 af 15
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Síðasta >>